11. maí 2026
Þriðjudagskvöldið 12. maí n.k. standa framboðslistar Á og D, sem bjóða fram í sveitarstjórnarkosningum 16. maí n.k. í Rangárþingi ytra fyrir sameiginlegum framboðsfundi í íþróttahúsinu á Hellu.
Fundurinn hefst kl. 20.
Á fundinum munu framboðin kynna stefnumál sín og svara spurningum fundargesta.
Allir íbúar Rangárþings ytra eru eindregið hvattir til að mæta.
Beinstreymi verður frá fundinum á facebook-síðu Rangárþings ytra.
Umboðsmenn Á- og D-lista í Rangárþingi ytra.