Samningar þeirra aðildarfélaga sem höfðu boðað til verkfallsaðgerða voru undirritaðir hjá Ríkissátta…
Samningar þeirra aðildarfélaga sem höfðu boðað til verkfallsaðgerða voru undirritaðir hjá Ríkissáttasemjara í nótt. Mynd: www.bsrb.is

Þau aðildarfélög BSRB sem boðað höfðu til verkfallsaðgerða sem hefjast áttu í dag hafa skrifað undir kjarasamninga og verkfallsaðgerðum því verið aflýst.

Aðildarfélög BSRB sem boðað höfðu til verkfallsaðgerða undirrituðu öll kjarasamninga við viðsemjendur í gærkvöldi og nótt og var verkfallsaðgerðum því aflýst. Fjögur aðildarfélög bandalagsins eiga enn eftir að ná samningum.

Samningarnir eru afturvirkir frá 1. apríl 2019 og gilda út 31. mars 2023. Þau félög sem nú hafa undirritað samninga eru: Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi, Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum, FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu, Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu, Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu, Sjúkraliðafélag Íslands, Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu, Starfsmannafélag Fjallabyggðar, Starfsmannafélag Fjarðabyggðar, Starfsmannafélag Hafnarfjarðar, Starfsmannafélag Húsavíkur, Starfsmannafélag Kópavogs, Starfsmannafélag Mosfellsbæjar, Starfsmannafélag Suðurnesja og Starfsmannafélag Vestmannaeyja.

Enn eiga fjögur aðildarfélög eftir að skrifa undir kjarasamning. Það eru Landssamband lögreglumanna, Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Félag starfsmanna stjórnarráðsins og Tollvarðafélag Íslands. Búast má við að aukinn kraftur verði settur í viðræður þessara félaga nú þegar niðurstaða er komin í sameiginleg mál sem voru á borði BSRB.

Á næstu dögum munu félögin sem nú hafa undirritað kjarasamninga kynna samningana fyrir sínum félagsmönnum. Eftir að kynning hefur farið fram verða samningarnir bornir undir atkvæði félagsmanna.

Stærstu tímamótin í samningunum eru án efa ákvæði um styttingu vinnuvikunnar án launaskerðingar. Starfsmenn í dagvinnu geta stytt vinnuvikuna allt niður í 36 stundir. Vinnuvika vaktavinnufólks styttist í 36 stundir og er mögulegt að stytta allt niður í 32 stundir.

Innan ramma lífskjarasamningsins
Þá var samið um að allir félagsmenn aðildarfélaganna fái 30 orlofsdaga á ári sem þýðir að þeir sem voru með fæsta orlofsdaga áður bæta við sig sex dögum.

Launahækkanir sem aðildarfélögin sömdu um rúmast innan ramma lífskjarasamningsins sem gerður var á almenna vinnumarkaðinum á síðasta ári. Þar sem hvert aðildarfélag fyrir sig samdi um launakjör er útfærslan á launahækkunum eitthvað mismundandi á milli samninga. Einnig var samið um ýmis sérmál í kjarasamningum einstakra félaga.

Frétt af vef BSRB

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?