Erla Sigríður Sigurðardóttir og Ágúst Sigurðsson við undirskrift samningsins. Með þeim á myndinni er…
Erla Sigríður Sigurðardóttir og Ágúst Sigurðsson við undirskrift samningsins. Með þeim á myndinni eru f.v. Valur Haraldsson og Eiður Smári Valsson.

Rangárþing ytra og Flugbjörgunarsveitin á Hellu hafa undirritað samstarfssamning til fjögurra ára vegna starfsemi sveitarinnar sem tryggir að starfsemi hennar verði áfram jafn öflug og verið hefur. Með samningnum er Flugbjörgunarsveitinni tryggðir fjármunir til starfseminnar sem nema 8.000.000 kr á tímabilinu.

Samningurinn felur í sér eflingu æskulýðs- og tómstundastarfs en Flugbjörgunarsveitin hefur haldið úti öflugu æskulýðs- og tómstundastarfi með ungliðadeild sem snýr að því að byggja upp og þjálfa unga björgunarsveitarmenn til að vinna í hóp, leysa verkefni á við fyrstu hjálp, rötun, fjallamensku og aðgerðarstjórnun með reglubundnum æfingum og ferðum. Flugbjörgunarsveitin heldur úti öflugum fjallabjörgunarhópi, sleðaflokk og sérhæfðum hundahópi og er það styrkt sérstaklega. Þá mun sveitin taka að sér ýmis verkefni tengdum viðburðum á vegum sveitarfélagsins. Þá eru kaup á björgunarbúnaði sem og viðhald húsnæðis styrkt.

Flugbjörgunarsveitin á Hellu heldur einnig heldur utan um, þjálfar og byggir upp, öflugt net sjálfboðaliða í björgunarstörfum sem geta tekist á við hin ýmsu verkefni sem upp koma á svæðinu, hvort sem það er vegna veðurs, náttúruvár eða aðstoðar við ferðamenn.

Það er sveitarfélaginu dýrmætt að hér sé starfrækt öflug björgunarsveit, skipuð einstaklingum sem ávallt eru tilbúnir til að bregðast við þegar útköll berast.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?