Samningur við Samtökin ´78 undirritaður

Á dögunum tók gildi sameiginlegur samningur Rangárþings eystra og Odda bs. við Samtökin ´78.

Samningurinn gildir út árið 2026 og kveður á um fræðslu fyrir skóla, leikskóla og frístundarmiðstöðvar sveitarfélaganna Rangárþings ytra, Áshrepps og Rangárþings eystra auk ráðgjafar Samtakanna ´78.

Fræðsluáætlun

Gert er ráð fyrir að allt starfsfólk leik- og grunnskóla sveitarfélaganna fái fræðslu um kynhneigð, kynvitund, kyntjáningu og kyneinkenni fólks. Í samningnum kemur fram að markmið fræðslunnar sé að „starfsfólk skóla hafi þekkingu á hinsegin málefnum og geti verið virkir fræðarar á umræddum sviðum á vettvangi jafnréttis og mannréttinda í skólastarfi grunnskólanna“.

Nemendur í 3., 6. og 9. bekk fá einnig fræðslu einu sinni á ári. Fræðslan fer fram á skólatíma og verður sniðin að hverjum aldurshópi.

Þá munu allir stjórnendur sveitarfélaganna fá fræðslu Samtakanna á tímabilinu.

Ráðgjöf

Samkvæmt samningnum hafa allir íbúar sveitarfélaganna aðgang að ráðgjöf Samtakanna ´78 án endurgjalds. Ráðgjöfina er hægt að nálgast í gegnum heimasíðu Samtakanna ´78. Allir ráðgjafar Samtakanna hafa víðtæka þekkingu á hinsegin málum og samkvæmt heimasíðu þeirra er ráðgjöfin „fyrst og fremst hugsuð fyrir hinsegin fólk, aðstandendur hinsegin fólks og einnig til þeirra sem eru ekki viss um hinseginleika.“ Markmiðið er að veita aðstoð og stuðning eftir þörfum.

Einhugur um mikilvægi

Mikil samstaða var innan sveitarstjórnar Rangárþings Ytra um samninginn og mikilvægi málaflokksins. Tillaga um samninginn kom upphaflega frá fulltrúum D-lista og í henni kom meðal annars fram að „Slagorð sveitarfélagsins er „Fyrir okkur öll“. Með öflugri og reglubundinni fræðslu gerum við samfélagið allt betur upplýst og betra til að takast á við þá staðreynd að við erum öll eins og við erum og að í samfélagi okkar á öllum að geta liðið vel. Samstarfssamningur við Samtökin ´78 er einn liður í að gera gott samfélag enn betra og „fyrir okkur öll“.

Spennandi samstarf

Sveitarfélagið horfir með bjartsýni til samstarfsins og vonar að þjónustan nýtist sem flestum og efli velferð og samstöðu íbúanna.

Jón Valgeirsson, sveitarstjóri RY, Daníel E. Arnarsson, framkvæmdastjóri Samtakanna ´78 og Sigríður Karólína Viðarsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi RE takast í hendur að undirritun lokinni.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?