Samráðsfundur um ferðamál í sveitarfélaginu

Ferðamenn í Rangárþingi ytra

Atvinnu- og menningarmálanefnd Rangárþings ytra boðar til samráðsfundar um ferðamál í sveitarfélaginu. Fundurinn verður í Menningarhúsinu á Hellu mánudagskvöld 27. apríl n.k. og hefst kl 20:00.
Rögnvaldur Guðmundsson mun kynna nýja skýrslu um „Ferðamenn í Rangárþingi ytra 2008-2014“. Ferðaþjónustuaðilar og aðrir áhugasamir eru hvattir til að mæta og eiga samtal um þessi gríðarlega mikilvægu mál hér á okkar svæði.

f.h. Atvinnu- og menningarmálanefndar
Sólrún Helga Guðmundsdóttir

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?