Samstarf um varnir gegn vatnstjóni á heimilum

Samstarf um varnir gegn vatnstjóni á heimilum

Ellefu fyrirtæki, stofnanir og samtök hafa myndað samstarfshóp um varnir gegn vatnstjóni. Gríðarlegt eignatjón, mikil óþægindi og jafnvel heilsutjón verður vegna vatnsleka, raka og myglu á íslenskum heimilum ár hvert. Tryggingafélögin bæta hluta tjónsins en verulegar fjárhæðir lenda á heimilunum. Samstarfshópurinn telur að mjög megi draga úr þessu tjóni með fræðslu til almennings og aukinni þekkingu og fagmennsku iðnaðarmanna.

Hópurinn bendir á ýmsar leiðir til að draga úr vatnstjóni. Meðal annars má nefna:

Að láta löggilta fagmenn ávallt annast pípulagnir og frágang í votrýmum (eldhús, bað, þvottahús), svo sem     múrverk, flísalögn og dúklögn. Reynslan sýnir að ófagleg vinnubrögð eða fúsk getur orðið fólki afar dýrkeypt Einnig þarf að hafa fagmenn með í ráðum um val á tækjum og efnum.

Að auka þekkingu og fagmennsku iðnaðarmanna sem koma að frágangi í votrýmum með því að gefa þeim kost á framhaldsmenntun.

Að fólk sinni umhirðu og eftirliti með lögnum og tækjum og bregðist við til að draga úr líkum á vatnstjóni eða koma í veg fyrir það.

Að fólk kunni að bregðast rétt við þegar vatnsleki verður. Þannig má koma í veg fyrir tjón eða draga úr því.

Bæklingur 

Að samstarfshópnum standa Félag dúklagninga- og veggfóðrarameistara, Félag pípulagningameistara, IÐAN fræðslusetur, Mannvirkjastofnun, Múrarameistarafélag Reykjavíkur, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Samtök um loftgæði, Sjóvá-Almennar tryggingar hf., TM hf., VÍS hf. og Vörður tryggingar hf.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?