Leikskólinn Laugaland auglýsir eftir:
Sérgreinastjóra heilsueflingar og útikennslu – 100% staða
Starfslýsing:
Framundan eru spennandi verkefni á sviði heilsueflingar og útikennslu og mun sérgreinastjóri halda utan um þá vinnu með leikskólastjóra. Má þar helst nefna:
- Innleiðing YAP leikskólafimi
- Heilsueflandi leikskóli
- Fræ framtíðarinnar – 30 ára afmælisverkefni leikskólans tengt útikennslu
Þá mun sérgreinastjóri einnig hafa yfirumsjón með:
- Hreyfistundum allra árganga
- Skipulagðri útikennslu allra árganga
Leikskólinn Laugaland er þriggja deilda leikskóli með 45 nemendur. Við leikskólann eru fjölbreytt tækifæri til kennslu úti í náttúrunni. Þá eru skipulagðar stundir í íþróttasal og sundlaug vikulega. Í tilefni af 30 ára afmæli leikskólans nú í vor hefur sveitarfélagið úthlutað leikskólanum sérstöku svæði til útikennslu og framundan er uppbygging svæðisins með áherslu á fjölbreytta nýtingu á borð við ræktun matjurta, útikennslustofu og hænsnabúskap, þegar fram líða stundir.
Menntun, hæfni og reynsla:
- Leyfisbréf kennara
- Reynsla eða menntun á sviði íþróttakennslu og/eða heilsueflingar
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Frumkvæði, áhugi og metnaður fyrir starfinu
Fríðindi í starf:
- Full vinnustytting, tekin út á föstudögum, í dymbilviku og milli hátíða um jól
- Frítt fæði
- Fatastyrkur
Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningum. Ráðið er í starfið frá ágúst 2026. Umsóknarfrestur er til 25. apríl. Umsóknum skal fylgja ferilskrá, kynningarbréf, leyfisbréf til kennslu og upplýsingar um meðmælendur. Umsækjendur þurfa einnig að sýna fram á hreint sakavottorð. Starfið hentar öllum óháð kyni.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Ósk Ómarsdóttir, leikskólastjóri, á leikskólinn@laugaland.is eða í síma 487-6633/866-2738.