Sérstakur húsnæðisstuðningur vegna 15 – 17 ára námsmanna

Foreldrar 15 – 17 ára barna sem hafa rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi eru minntir á að skila þarf inn nýrri umsókn í upphafi skólaárs. Umsóknir er hægt að nálgast á heimasíðunni felagsmal.is. Með umsóknum þarf að fylgja húsaleigusamningur og staðfesting á námi barns. Skila þarf umsóknum og fylgigögnum á skrifstofu félagsþjónustunnar að Suðurlandsvegi 1 – 3, 850 Hellu eða á netfangið inga@felagsmal.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?