Menningarsjóður Rangárþings ytra – fyrri úthlutun 2026
Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd kom saman 21. apríl 2026 til að ákvarða úthlutun. Átta umsóknir bárust, þar af sjö styrkhæfar, en til úthlutunar voru kr. 1.000.000.
Til grundvallar úthlutunar lágu úthlutunarreglur Menningarsjóðs Rangárþings ytra.
Nefndin vill þakka öllum sem sendu inn umsókn en um var að ræða mjög fjölbreytt og spennandi verkefni.
Þau verkefni sem fá styrk að þessu sinni eru:
Karlakór Rangæinga - „Útsetning sönglaga fyrir tónleika“: 150.000 kr.
Um verkefnið:
Kórinn sækir um styrk til að fjármagna útsetningar sönglaga fyrir tónleika kórsins á árinu 2026.
Umsögn nefndar:
Karlakór Rangæinga hefur um áratugaskeið haldið úti öflugu starfi í sýslunni, haldið fjölda tónleika, tekið þátt í ótalmörgum verkefnum og sýnt metnað við útsetningar. Nefndin hefur áður styrkt kóra vegna sambærilegra verkefna, telur verkefnið til þess fallið að auðga menningarlíf í heimabyggð og samþykkir því umsóknina.
Rótarýklúbbur Rangæinga - „Kynningarefni fyrir Austurleiðarstofu í Samgöngusafni Skógasafns“: 290.000 kr.
Um verkefnið:
Austurleiðarstofa í Samgöngusafni Skógasafns var opnuð í apríl 2026. Sótt var um styrk fyrir kynningarefni til að laða gesti að safninu, bæði innlenda og erlenda, til þess að skoða fallega Austurleiðarrútu, rúmlega 60 ára gamla, auk þess þrjú stór sýningarspjöld þar sem sagan er rakin í rúm 40 ár. Kynningarefnið er að hluta til rafrænt, en einkum er það stór bæklingur með teiknuðum myndum af Austurleiðarrútu á framhlið og bakhlið. Í efni bæklingsins er lögð áhersla á umfjöllun um „Tíðarandann“, (bæði á íslensku og ensku), hvað var öðruvísi á þessum tíma, hvernig voru bílarnir, vegirnir, hvar gisti fólk, hvar var borðað, hvernig var klæðnaður fólks?
Umsögn nefndar:
Saga Austurleiðar er samofin samgöngusögu svæðisins en áætlunarferðir fyrirtækisins spiluðu stórt hlutverk við að efla samgöngur og ferðamennsku á Suðurlandi um áratugaskeið. Þessari merku sögu hafa nú verið gerð góð skil á Skógasafni þar sem meðal annars má líta uppgerða Benz-rútu af árgerð 1962. Nefndin telur að verkefnið hafi ríkt menningarsögulegt gildi og sé til þess fallið að varðveita og miðla sögunni til yngri kynslóða. Skógasafn er byggðasafn Rangæinga og Vestur-Skaftfellinga og með þessari styrkveitingu hafa öll sveitarfélög sýslnanna auk sveitarfélagsins Hornafjarðar styrkt verkefnið.
Bjarki Eiríksson - „Árbakkinn sólstöðuhátíð“: 160.000 kr.
Um verkefnið:
Hátíðin/tónleikarnir voru settir á laggirnar með það að markmiði að skapa vettvang fyrir tónlistarfólk, búsett í eða frá Rangárvallasýslu – eða með sterka tengingu við svæðið – til að koma fram og kynna sig og list sína. Ákveðinn fjöldi flytjenda kemur fram og flytur nokkur lög við undirleik hljómsveitar. Gert er ráð fyrir um þremur lögum eða ca. 15 mínútum á hvern flytjanda. Tónleikarnir fara fram utandyra á útivistar- og fjölskyldusvæðinu í Nesi á Hellu þann 17. júní næstkomandi. Jafnframt er markmið hátíðarinnar að bjóða íbúum og gestum upp á ókeypis, fjölskylduvæna tónleika, efla menningarlíf á svæðinu og fagna sumarsólstöðum með söng og gleði utandyra í fallegu umhverfi, þar sem tenging við náttúruna fær að njóta sín.
Umsögn nefndar:
Bjarki hélt sambærilega tónleika í fyrra. Sá viðburður fór vel fram og náði þeim markmiðum sem lagt var upp með. Áherslan í ár er áfram að búa til vettvang fyrir listamenn úr heimabyggð til að koma fram og bjóða upp á gjaldfrjálsa og fjölskylduvæna skemmtun. Nefndin telur að verkefnið falli vel að markmiðum sjóðsins og sé til þess fallið að auðga menningarlíf í heimabyggð.
Sveitakarlinn ehf. / Uppspuni - „Hönnunarsamkeppni í tilefni alþjóðlegs árs kvenbóndans“: 100.000 kr.
Um verkefnið:
Árið 2026 er Alþjóðlegt ár kvenbóndans, tilnefnt svo af Sameinuðu Þjóðunum. Okkur langar að gera kvenbændum landsins (og annarra landa) hátt undir höfði með því að vekja meiri athygli á þeim. Því stofnum við til samkeppni þar sem ullarpeysa fyrir kvenbændur er hönnuð. Hönnunarsamkeppnin stendur til 1. júní 2026 og verða niðurstöður kynntar 20. júní.
Umsögn nefndar:
Verkefnið er frumlegt og til þess fallið að efla menningarstarf á svæðinu og víðar. Verkefnið ýtir undir samvinnu og sköpun og vekur athygli á menningararfi okkar sem bændasamfélag með sérstaka áherslu á kvenbændur í tilefni af alþjóðlegu ári kvenbóndans.
Ullarvikan félagasamtök - „Ullarvika 2026“: 300.000 kr.
Um verkefnið:
Ullarvikan hefur verið haldin á Suðurlandi þrisvar sinnum og verður því í fjórða sinn á hausti komanda. Ullarvikan opnar alltaf með þátttöku í litasýningu sauðfjár í Árbæjarhjáleigu. Á Ullarviku eru einnig haldin námskeið í ýmsu handverki tengdu ull, haldnar eru sýningar á handverki úr ull og skinnum, fyrirlestrar og kynningar. Í haust verður málþing um ull, handverksfólk opnar vinnustofur sínar, haldin er spunakeppni og markaðsdagur sem jafnan er lokadagur Ullarviku. Á markaðsdeginum verður einnig opin kaffistofa. Prjónasamsæti verða haldin alla daga ullarvikunnar og aðrar samkomur. Kennarar á námskeiðum Ullarvikunnar eru bæði íslenskir og erlendir, m.a. frá Bandaríkjunum og Skotlandi. Markmið Ullarviku er að vekja athygli á íslensku ullinni og þeim möguleikum sem hún gefur í handverki og listsköpun. Einnig að leiða saman fólk sem getur miðlað af þekkingu sinni á ullinni og komið henni til skila á árangursríkan hátt. Ávinningur Ullarviku er ótvírætt sá að athygli er vakin á íslensku sauðkindinni og ullinni af henni og hverju vinnsla á ull og fræðsla um hana getur skilað til samfélagsins og hvernig hægt er að auka þau verðmæti sem mögulegt er að skapa úr ullinni.
Umsögn nefndar:
Verkefnið er metnaðarfullt og umfangsmikið og stuðlar meðal annars að samvinnu, sköpun og varðveislu menningararfs. Að verkefninu kemur fjölmargt handverksfólk úr heimabyggð og nefndin telur það til þess fallið að auðga menningarlíf á svæðinu og kynna íslensku ullina svo eftir sé tekið. Verkefnið hefur þegar fest sig í sessi og fellur vel að markmiðum sjóðsins.
Hugverk í heimabyggð - „Listasmiðja fyrir börn og ungmenni á Töðugjöldum 2026“: 100.000 kr.
Um verkefnið:
Árleg listasmiðja hópsins á Töðugjöldum á Hellu. Lögð er áhersla á að efla og styðja við listsköpun ungs fólk og vekja áhuga á nýrri sýn varðandi efnisval, með því að nýta hráefni og áhöld sem til eru á flestum heimilum og gefa gömlum hlutum nýtt líf, sem sparar kolefnisspor. T.d. að nýta rúðusköfur, gamla pensla, uppþvottabursta, gamlar trjágreinar o.fl. til að mála með í bland við nýtt. Miðla þekkingu og fræðslu til komandi kynslóða . Kynna rangæskt handverk en félagsfólk í Hugverk er listafólk með fjölbreytta þekkingu á sviði lista.
Umsögn nefndar:
Hugverk í heimabyggð hefur um árabil boðið upp á sambærilega listamiðju á Töðugjöldum á Hellu. Hún hefur verið afar vel sótt og börnin notið sín við að prófa fjölbreyttan efnivið í listsköpun. Aðgangur er gjaldfrjáls og þau sem standa að smiðjunni gefa sína vinnu en sækja um styrk fyrir efniskostnaði. Nefndin telur verkefnið orðið órjúfanlegan hluta Töðugjalda og leggur til að styrkurinn skrifist á fjárhag Töðugjalda og verði hér eftir fastur liður á hátíðinni í samráði við félagsfólk Hugverks í heimabyggð. Verkefnið ber vott um óeigingjarnan vilja til að miðla þekkingu og gefa börnum og ungmennum tækifæri á að prófa sig áfram við listsköpun og eiga Guðfinna Þorvaldsdóttir og aðrir félagar Hugverks í heimabyggð þökk skilið fyrir að bjóða upp á það.
Nefndin hvetur alla til að fylgjast með framgangi þessara áhugaverðu verkefna og hlakkar til að sjá þau verða að veruleika.
Vert er að ítreka að þau sem hlutu ekki styrk að þessu sinni geta sótt um aftur í seinni úthlutun sjóðsins sem verður í haust.
Virðingarfyllst,
Markaðs-, menningar- og jafnréttismálanefnd Rangárþings ytra.