Síðasti skiladagur lista til framboðs í sveitarstjórnarkosningum 2022

Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Rangárþingi ytra, sem fram fara laugardaginn 14. maí 2022, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 8. apríl 2022.

Þann sama dag tekur kjörstjórn sveitarfélagsins á móti framboðslistum í Heklu, fundarsal sveitarfélagsins að Suðurlandsvegi 1-3, Hellu, milli kl. 11:00-12:00.

Vakin er athygli á að ný kosningalög nr. 112/2021 tóku gildi 1. janúar 2022.

Allar nánari leiðbeiningar til framboða er að finna á vefsíðu Stjórnarráðs Íslands kosning.is

 

Kjörstjórn Rangárþings ytra.

Helga Hjaltadóttir, formaður

Birkir Ármannsson

Heiðrún Ólafsdóttir

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?