31. mars 2026
Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninga í Rangárþingi ytra, sem fram fara laugardaginn 16. maí 2026, rennur út kl. 12:00 á hádegi föstudaginn 10. apríl 2026.
Þann sama dag tekur yfirkjörstjórn sveitarfélagsins á móti framboðslistum í fundarsalnum Laugum á skrifstofu Rangárþings ytra að Suðurlandsvegi 1, 2. hæð Miðjunnar á Hellu, á milli kl. 11:00 og 12:00.
Hverjum framboðslista skal fylgja:
- Tilkynning um framboð, þar sem fram koma upplýsingar um heiti stjórnmálasamtakanna og listabókstaf þeirra, samkvæmt skrá dómsmálaráðuneytisins.
- Ef stjórnmálasamtök hafa ekki listabókstaf skal óska eftir honum við yfirkjörstjórn sveitarfélagsins.
- Upplýsingar um hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans, ásamt samþykki þeirra.
- Framboðslisti ásamt undirrituðu samþykki frambjóðenda fyrir því að fara í framboð.
- Meðmæli með framboðinu – að lágmarki 40 og hámarki 80. Hægt er að safna meðmælum rafrænt á Ísland.is Stofna meðmælasöfnun vegna framboðs til sveitarstjórnar | Ísland.is
- Heimilt er að safna meðmælum á pappír. Mælst er til þess að framboð slái meðmælin inn í rafræna meðmælakerfið. Skila þarf inn frumriti til yfirkjörstjórnar sveitarfélagsins.
Yfirkjörstjórn Rangárþings ytra.
Heiðrún Ólafsdóttir
Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir
Guðmundur Jónasson