Símalaus grunnskóli

Miklar umræður hafa verið í skólasamfélaginu uppá síðkastið um notkun síma í einkaeigu í grunnskólum landsins. 

Eftir miklar umræður um hvort Grunnskólinn Hellu ætti að vera símalaus skóli ákváðu stjórnendur að fela skólaráði að kanna hug foreldra og starfsmanna skólans til þeirra mála.
Í skólaráði sitja fulltrúar nemenda, foreldra, kennara, annarra starfsmanna og stjórnenda. Í framhaldi var lögð fyrir viðhorfskönnun þar sem spurt var um hvaða útfærsla á breyttum skólareglum hugnaðist fólki best og hvernig útfærslu fólk sæi fyrir sér ef skólinn yrði símalaus.
Í ljósi niðurstaðna könnunarinnar og vitundarvakningar varðandi notkun snjalltækja komst skólaráð að þeirri niðurstöðu að notkun snjalltækja í einkaeigu nemenda verði bönnuð í Grunnskólanum á Hellu.

Grunnskólinn á Hellu verður því símalaus frá og með mánudeginum 15. janúar.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?