Rangæingurinn Þórður Atli
Rangæingurinn Þórður Atli

Sindratorfæran á Hellu fór fram 8 maí.

18 keppendur hófu keppni í 2 flokkum. keppnin var æsispennandi og var í beinni útsendingu á motorsport.is. um 3000 manns fylgdust með streyminu hjá snillingunum í Skjáskot sem sá um að koma öllu heim í stofu til þeirra sem fylgdust með. Strax í fyrstu braut voru það þeir Ólafur Bragi Jónsson á refnum, Snorri Þór Árnason á Kórdrengnum og Skúli Kristjánsson á Simba sem tóku forustu í sér útbúna flokknum. Snorri leiddi framanaf og sló meðal annars heimsmet í hraða á vatni þegar hann sigldi kórdrengnum í 103 kílómetra hraða á ánni. Hann náði svo ekki að klára mýrina og þá skaust Ólafur Bragi á toppinn og Skúli fylgdi fast á eftir. Ólafur Bragi vel að sigrinum komin eftir frábæran akstur allan daginn með 1680 stig. Skúli ríkjandi heimsmeistari fylgdi fast á eftir með 1599 og Snorri Þór með 1550. í næstu sætum á eftir voru það þeir Guðmundur Elíasson á Ótemjunni, Ásmundur Ingjaldsson á Bombunni og Sigurður ingi Sigurðsson á JIBBIIIII. Ingvar Jóhannesson á Víkingnum hlaut tilþrifaverðlaun í þessum flokk eftir glæsileg tilþrif í 3 braut þar sem hann sneri sér í nokkra hringi og endaði á hjólunum.

Í götubílaflokknum var það Steingrímur Bjarnason á Strumpnum ríkjandi íslandsmeistari sem byrjaði titilvörnina vel nældi sér í flest stig eftir daginn, kláraði ánna með miklum sóma og mýrina í fyrsta skipti á ævinni, sem væri ekki sögulegt nema fyrir það að vera að búinn að keppa á Hellu á annan tug skipta. Það má því segja að hann hafi komið sá og sigrað, hreppti 1 sæti í sínum flokk, hlaut Helluna farandbikar keppninnar fyrir flest stig eftir daginn og tilþrifaverðlaun. Í öðru sæti var Páll Pálsson en hann er að koma aftur eftir 11 ára hlé. Hann skellti bensín á Willys græjuna en átti aldrei möguleika á að ná Steingrími eftir að hann velti í 2 braut. Í þriðja sæti var það Haukur Birgisson á Þeytingi hann lenti í slæmri velltu í annar braut og datt því úr keppni en hreppti samt sem áður 3 sætið því Óskar Jónsson lenti í slæmri bilun í fyrstu braut sem hann náði ekki að komast fyrir. Þetta var í 45 skiptið sem Flugbjörgunarsveitin á Hellu stendur fyrir torfæru á Hellu og í fyrsta skipti sem áhorfendur geta einungis setið heima í stofu til þess að fylgjast með. Mikil áskorun fyrir sveitina sem þóttist taka afar vel.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?