Sjö af þrettán hrossaræktarbúum sem tilnefnd eru sem ræktunarbú ársins 2026 eru í Rangárvallasýslu. Það undirstrikar sterka stöðu hrossaræktar á svæðinu og þann mikla árangur sem ræktendur hér hafa náð.
Fagráð í hrossarækt hefur valið þau bú sem tilnefnd eru til árlegrar heiðursviðurkenningar Bændasamtaka Íslands, ræktunarbú ársins. Valið stóð á milli 70 búa sem náð höfðu athyglisverðum árangri á árinu. Að þessu sinni eru 13 bú tilnefnd þar sem tvö bú eru jöfn í tólfta sæti.
Af þessum 13 búum eru sjö í Rangárvallasýslu:
- Efsta-Sel, Daníel Jónsson, Bertha María Waagfjörð og Hilmar Sæmundsson
- Fet, Anton Páll Níelsson, Bylgja Gauksdóttir og Ólafur Andri Guðmundsson
- Flagbjarnarholt, Bragi Guðmundsson, Valgerður Þorvaldsdóttir, Sveinbjörn Bragason og Þórunn Hannesdóttir
- Hemla II, Lovísa Herborg Ragnarsdóttir, Vignir Siggeirsson og fjölskylda
- Margrétarhof, Reynir Örn Pálmason og Montan fjölskyldan
- Skálakot, Guðmundur J. Viðarsson, Jóhanna S. Þórhallsdóttir og fjölskylda
- Sumarliðabær 2, Birgir Már Ragnarsson og Silja Hrund Júlíusdóttir
Tilnefndu búin munu hljóta viðurkenningu á ráðstefnunni Hrossarækt 2026 sem haldin verður í reiðhöll Spretts laugardaginn 7. nóvember.
Árangurinn sýnir vel þann kraft sem býr í hrossarækt á svæðinu og er ástæða til að óska ræktendum og öllum sem að starfinu koma innilega til hamingju með glæsilegan árangur.