Hjördís Guðrún Brynjarsdóttir eigandi Sjúkraþjálfunar Rangárþings
Hjördís Guðrún Brynjarsdóttir eigandi Sjúkraþjálfunar Rangárþings

Þann 1. September fluttist Sjúkraþjálfun Rangárþings frá Lundi í Miðjuna á Hellu. Það er Hjördís Guðrún Brynjarsdóttir sem á og rekur Sjúkraþjálfun Rangárþings en hún hóf starfsemi í Hvolsvelli 2009-2011 flutti þá á Lund og nú í Miðjuna.

Þeir sem leita til sjúkraþjálfara gera það eftir að hafa fengið beiðni frá lækni.

Hvað er Sjúkraþjálfun?

Sjúkraþjálfarar greina og meðhöndla hreyfitruflanir og orsakir þeirra, hjá fólki sem er allt frá því að vera rúmliggjandi á sjúkrahúsum til þess að vera keppnisfólk í íþróttum. Þar að auki fást sjúkraþjálfarar við að koma í veg fyrir eða draga úr afleiðingum áverka, álagseinkenna, sjúkdóma og lífsstíls sem með truflun á hreyfingu geta raskað lífi einstaklingsins.

Þjónusta Sjúkraþjálfunar Rangárþings er mjög eftirsótt og yfirleitt er smá biðlisti.

Hægt er að finna ýmsan fróðleik á síðu Sjúkraþjálfarafélagsins www.physio.is

Hægt er að hafa samband í s: 7836868 eða sjukrathjalfari@simnet.is

Sjúkraþjálfun Rangárþings er einnig á Facebook.

Fleiri fréttir og umfjallanir um fyrirtæki í Rangárþingi ytra má nálgast í nýjasta fréttabréfi sveitarfélagsins.

Fleiri myndir má nálgast á Facebook síðu Rangárþings ytra.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?