Skemmdarverk á Hellu upplýst

Lögreglan hefur gefið út tilkynningu vegna skemmdarverka sem unnin voru á Hellu fyrr í vikunni.

Tilkynning lögreglunnar:
"Líkt og fjallað var um í fjölmiðlum fyrr í vikunni hefur lögreglan á Suðurlandi haft til rannsóknar eignaspjöll sem unnin voru á Hellu aðfaranótt síðasta mánudags. Skorið var á bönd á samtals níu fánastöngum þar sem regnbogafánar blöktu við hún. Í þessu máli, eins og í öllum málum, miðaði rannsókn lögreglu að því m.a. að afla allra tiltækra gagna um verknað þann sem um ræðir og öll nánari atvik sem ætla má að skipt geti máli, þ.á.m. hvaða hvatir bjuggu að baki verknaði. Við rannsókn málsins kom í ljós að þarna höfðu nokkur 14 og 15 ára gömul börn verið að verki. Málið telst nú upplýst og í hefðbundnu afgreiðsluferli hjá lögreglu og barnavernd."

Málið er því upplýst og því lokið af hálfu sveitarfélagsins. 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?