Skjálftasögur – óskað eftir frásögnum

17. júní næstkomandi verða 25 ár frá Suðurlandsskjálftunum árið 2000.

Aldarfjórðungi síðar eru atburðirnir flestum sem bjuggu á þessu svæði eða voru stödd hér enn í fersku minni.

Við eigum öll okkar skjálftasögu en flestar eru aðeins til í munnlegri geymd.

Því langar okkur að óska eftir skjálftasögum og við viljum heyra þær allar, langar sem stuttar og frá fólki á öllum aldri sem man.

Skjálftarnir urðu 17. og 21. júní árið 2000 og við viljum endilega heyra sögur beggja.

Endilega sendu inn þína sögu með því að fylla út eyðublaðið hér fyrir neðan – hægt er að fylla beint inn í eyðublaðið eða senda skjal í viðhengi.

Ef þú átt myndir sem sýna eftirköst skjálftanna má endilega láta þær fylgja með líka í viðhengi við eyðublaðið.

Ef einhver lumar á myndskeiði frá skjálftanum sjálfum væri einnig afar dýrmætt að fá fregnir af því.

Markmiðið með þessu er að safna saman frásögnum og tryggja að sögur fólksins af þessum stóra atburði í sögu samfélagsins verði skrásettar. Sögurnar verða síðan birtar á heimasíðunni Suðurlíf.is þar sem sérstakt svæði verður tileinkað verkefninu „Skjálftasögur“.

Sögur má senda inn undir nafni eða nafnlaust. Þau sem senda inn nafnlaust sleppa því einfaldlega að fylla út reitina „nafn“, „netfang“ og „búseta á tíma skjálftanna“.

Með kærri þökk og ósk um góð viðbrögð og þátttöku sem flestra.

Ösp Viðarsdóttir, markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra.

Eyðublað - sendu inn sögu