Laugalandsskóli í Holtum óskar eftir jákvæðri og áreiðanlegri manneskju til að sinna gæslu m.a. á fótboltavelli, stuðning í bekk og almennum þrifum .
Í Laugalandsskóla stunda um 100 nemendur nám. Einkunnarorð skólans eru samvinna, traust og vellíðan í leik og starfi. Skólinn vinnur eftir uppeldisstefnu jákvæðs aga.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins og viðkomandi stéttarfélags. Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um en leitumst þó sérstaklega eftir einstaklingi sem getur sinnt gæslu í karlaklefa í íþrótta- og sundtímum.
Nánari upplýsingar veitir Ragna Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri í síma 6907305. Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang aðstoðarskólastjóra; ragna@laugaland.is