Skólasetning grunnskólanna í Rangárþingi ytra

Skólasetning Laugalandsskóla verður fimmtudaginn 29. ágúst kl. 10:00. Þá fá nemendur stundaskrá og hitta umsjónarkennara sinn. Boðaðir eru allir nemendur 2. – 10. bekkjar. Skólabílarnir aka nemendum í skólann og munu leggja aftur af stað frá skólanum klukkan 11:15. Frá og með föstudeginum 30. ágúst mæta allir í 1. – 10. bekk samkvæmt stundaskrá kl. 8:30.

Grunnskólinn á Hellu verður settur föstudaginn 30. ágúst n.k. Skólasetningin fer fram í íþróttahúsinu og hefst kl. 11:00. Að skólasetningu lokinni ganga nemendur með umsjónarkennurum sínum í kennslustofur og fá afhent námsgögn og stundaskrár. Áætlað er að þessum fyrsta skóladegi ljúki um kl. 12:00. Kennsla samkvæmt stundaskrá hefst mánudaginn 2. september kl. 08:10.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?