Hella - Ljósmyndari: Guðmundur Árnason
Hella - Ljósmyndari: Guðmundur Árnason

Skólastjóri Grunnskólans á Hellu

Byggðasamlagið Oddi bs óskar eftir að ráða skólastjóra við Grunnskólann á Hellu. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn til að ganga glaður til verka og leiða af dugnaði öflugt skólasamfélag með samstöðu og árangur að leiðarljósi. Mikilvægt er að skólastjóri sé tilbúinn að viðhalda þeim góða skólabrag sem einkennt hefur starf Grunnskólans á Hellu.

Á starfssvæði byggðasamlagsins búa um 1900 íbúar en það eru sveitarfélögin Rangárþing ytra og Ásahreppur sem standa að Odda bs. Grunnskólinn á Hellu er heildstæður grunnskóli með um 130 nemendur. Nánari upplýsingar um skólann má finna á www.grhella.is. Gildi Grunnskólans á Hellu eru: virðing – vinátta – víðsýni.

Ráðið verður í stöðuna frá 1. ágúst næstkomandi eða fyrr eftir samkomulagi. 

Helstu verkefni og ábyrgð:

  • Veita faglega forystu og leiða þróun skólastarfs til framtíðar í samræmi við skólastefnu sveitarfélaganna sem standa að byggðasamlaginu Odda bs, aðalnámskrá grunnskóla og lög um grunnskóla.
  • Stýra og bera ábyrgð á rekstri og daglegri starfsemi skólans.
  • Bera ábyrgð á starfsmannamálum, s.s. ráðningum, starfsþróun og vinnutilhögun.
  • Bera ábyrgð á samstarfi við aðila skólasamfélagins.

Menntunar- og hæfnikröfur:

  • Leyfisbréf sem grunnskólakennari og farsæl kennslureynsla í grunnskóla.
  • Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar eða uppeldis- og menntunarfræða og/eða farsæl stjórnunarreynsla.
  • Færni og reynsla í starfsmannastjórnun, stefnumótun og áætlanagerð.
  • Hæfni í samskiptum og metnaður til árangurs.
  • Reynsla í fjármálastjórnun kostur.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Samninganefndar sveitarfélaga (SNS) og Skólastjórafélags Íslands (SÍ).
Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri byggðasamlagsins Odda bs.

Umsóknarfrestur er til 8. apríl nk. Umsóknum skal skila á netfangið agust@ry.is. Með umsókn skal skila starfsferilskrá, nöfnum 2 umsagnaraðila, stuttri kynningu á umsækjanda og greinargerð þar sem umsækjandi gerir grein fyrir sýn sinni á skólamál og faglegri reynslu og getu sem nýtist í starfi.

Frekari upplýsingar um starfið veitir Ágúst Sigurðsson sveitarstjóri í gegnum netfangið agust@ry.is eða í síma 4887000. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Réttur er áskilinn til að hætta við ráðningu og/ eða auglýsa stöðuna að nýju.

Á Hellu búa um 900 manns og stendur Grunnskólinn á Hellu í hjarta þorpsins á einu fegursta bæjarstæði landsins við hina lygnu Ytri-Rangá. Í næsta nágrenni við grunnskólann er leikskólinn Heklukot og Tónlistarskóli Rangæinga, Íþróttamiðstöð með frábærri sundlaug, sparkvelli og leik- og útiíþróttasvæði. Á Hellu er margvísleg þjónusta og kraftmikil uppbygging m.a. hvað varðar fjölbreytt íbúðahúsnæði. Þar eru ótal möguleikar til að sinna áhugamálum og útiveru af öllu tagi. Á Hellu er gott mannlíf og þar er tekið vel á móti fólki.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?