Skrifstofa Rangárþings ytra lokar kl. 10:30 föstudaginn 4. september

Skrifstofa Rangárþings ytra verður lokuð frá kl. 10:30 föstudaginn 4. september vegna sameiginlegs fræðsludags starfsfólks.

Fræðsludagurinn er haldinn fyrir starfsfólk Rangárþings ytra, Odda bs., Félags- og skólaþjónustunnar, Sorpstöðvar Rangárvallasýslu og Tónlistarskóla Rangæinga.

Við biðjum íbúa að hafa lokunina í huga og þökkum fyrir skilninginn.