Markaðsstofa Suðurlands vinnur að þróun nýrrar ferðaleiðar undir heitinu Söguslóðir Suðurlands þar sem saga, menning, náttúra og mannlíf landshlutans verða fléttuð saman. Af því tilefni verður haldin opin vinnustofa á Stracta Hótel á Hellu miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 11–13.
Verkefnið miðar að því að draga fram sögur, staði og menningararf Suðurlands og nýta þau til að skapa áhugaverðar ferðaleiðir sem hvetja gesti til að dvelja lengur og heimsækja fleiri staði í landshlutanum.
Á vinnustofunni verður meðal annars unnið að því að kortleggja sögustaði, þjóðsögur, merkilegt fólk og atburði sem tengjast svæðinu. Heimafólk, sveitarfélög, söfn, félagasamtök, ferðaþjónustuaðilar og önnur áhugasöm eru hvött til að taka þátt og leggja sitt af mörkum.
Hvaða sögur búa á okkar svæði?
Þekking og frásagnir heimafólks eru mikilvægur þáttur í verkefninu og því er kjörið tækifæri fyrir íbúa Rangárþings ytra og nágrennis að koma sínum hugmyndum og sögum á framfæri.
Afurðir verkefnisins verða meðal annars stafrænt kort, þemabundnar ferðaleiðir og efnisbanki sem nýtast munu við áframhaldandi uppbyggingu menningartengdrar ferðaþjónustu á Suðurlandi.
Vinnustofan fer fram á Stracta Hótel á Hellu miðvikudaginn 11. nóvember klukkan 11–13. Léttar veitingar verða í boði.
Skráning og nánari upplýsingar á vef Markaðsstofu Suðurlands.