Söngur, sviðslist og tilfinningar mætast í Ást

Kórinn VOX Rangárþing frumsýnir á föstudaginn nýja tónleikasýningu, ÁST / LOVE, í Hvoli á Hvolsvelli. Þetta eru ekki hefðbundnir kórtónleikar heldur kórleikhúsverk þar sem tónlist, leikhús, sviðshreyfingar og raunverulegar sögur kórmeðlima fléttast saman í eitt.

Uppselt er á frumsýninguna á föstudaginn en ennþá er hægt að tryggja sér miða á laugardags- og sunnudagstónleikana. Tryggðu þér þinn miða á Tix.is - VOX Rangárþing - ÁST - Velja miða

VOX var stofnaður árið 2025 og telur í dag um 50 virka meðlimi. Kórinn varð til úr þeirri hugmynd að skapa nýjan vettvang fyrir fólk sem langar að syngja, skapa og segja sögur saman, óháð reynslu, aldri, uppruna eða bakgrunni. Frá upphafi hefur VOX lagt áherslu á að vera öruggur staður þar sem fólk fær að prófa, læra, mistakast og vaxa saman í gegnum tónlist.

Í ÁST / LOVE er fjallað um ástina í mörgum myndum, ekki aðeins rómantíska ást, heldur einnig fjölskyldu, þrá, tengsl, missi, ábyrgð, von, sársauka og gleði. Verkið byggir að hluta á sönnum sögum kórmeðlima sem deildu persónulegum frásögnum sínum við undirbúning sýningarinnar.

„Í janúar báðum við fólkið í kórnum að senda okkur sögurnar sínar og við fengum svo margar. Þessar sögur eru grunnurinn að sýningunni sem við erum að setja upp. Þetta eru alvöru, sannar sögur og þær eru ótrúlegri en þið getið ímyndað ykkur,“ segir Harpa, listrænn stjórnandi kórverksins.

Sýningin er sögð á óvenjulegan hátt þar sem áhorfendur ferðast í gegnum æviskeið mannsins en sagan hefst nærri lokum lífsins og færist smám saman í átt að upphafinu. Tónlistin er fjölbreytt, bæði íslensk og erlend, eldri og nýrri, og flutt á íslensku og ensku.

„Samfélag birtist ekki sjálfkrafa bara vegna þess að fólk býr á sama stað. Eitthvað verður að skapa tenginguna. VOX gerir það,“ segir Gábor Tengely, leikstjóri sýningarinnar.