Myndir sýnir gámasvæðið á Strönd.
Myndir sýnir gámasvæðið á Strönd.

Ákveðið er að fara í hreinsunarátak í sveitum á vegum Sorpstöðvar Rangárvallasýslu. Gámar verða staðsettir á eftirtöldum stöðum, þ.e. á "gömlu" gámastæðum þessara staða: Skógum, Heimalandi, A-Landeyjum, V-Landeyjum, Fljótshlíð, Bakkabæjum, Rangárvöllum (vegamót Gunnarsholtsvegar og Þingskálavegar), Þykkvabæ, Hellu og Landvegamótum. 

Á gámastæðum verða gámarnir sem hér segir: Í Rangárþingi eystra 3. október til 9. október og í Rangárþingi ytra og Ásahreppi 12. október til 19. október 2017. 

Sérstaklega skal taka fram að eingöngu verða þar gámar fyrir málma, timbur og grófan úrgang. Gámarnir eru eingöngu ætlaðir fyrir fasteignaeigendur á starfssvæði Sorpstöðvar Rangárvallasýslu og eru gjaldfrjálsir. 

Ákaflega mikilvægt er að rétt sé flokkað í gámana. Ef misbrestur verður á því er engin leið önnur en að fjarlægja gámana áður en hreinsunarátakinu lýkur og aðrar leiðir verður að fara í hreinsunarátaki að ári liðnu. Vart þarf að taka fram að algerlega óheimilt er að setja úrgang utanvið gámana. 

Rekstrarúrgang og annan úrgang verða íbúar og rekstraraðilar að koma með að móttökustöðinni á Strönd eða semja við þjónustuaðila um hirðingu og losun þess úrgangs. Rúllu- og baggaplast er sótt heim til bænda skv. samkomulagi þeirra við þjónustuaðila. Einnig er hægt að losna við plastið á gámavellinum á Strönd og á Hvolsvelli. 

Eftir að hreinsunarátakinu lýkur verða allir gámar fjarlægðir og algerlega er óheimilt að afsetja úrgang á þessi svæði. 

Allar nánar upplýsingar veitir 

Ómar Sigurðsson
Starfsmaður sorpstöðvar Rangárvallasýslu
Sími: 4875157
Tölvupóstur: strond@rang.is

Sorpstöð Rangárvallasýslu bs. 
 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?