Sprenging á framkvæmdasvæði Hvammsvirkjunar í dag

Í dag, mánudaginn 29. júní, á milli kl. 12 og 16 má búast við forskurðarsprengingu (presplit) á framkvæmdasvæði Hvammsvirkjunar. Sprengingin er hluti af jarðvinnu á svæðinu og fer fram vegna forskurðar í bergi, þar sem skurður er mótaður áður en frekari jarðvinna fer fram. Búast má við fleiri sprengingum á framkvæmdasvæðinu á næstu vikum eftir því sem vinnu miðar áfram.

Allar frekari upplýsingar er að finna á vefsíðu verkefnisins: https://www.landsvirkjun.is/hvammsvirkjun"

Hér að neðan má sjá mynd af forskornu bergi til nánari skýringar á tegund sprengingar.