Sprengisandsleið - kynningarfundur á Hellu
Drög að tillögu að matsáætlun
Vegagerðin auglýsir hér með drög að tillögu að matsáætlun vegna fyrirhugaðra framkvæmda á Sprengisandsleið (26) milli Suður- og Norðurlands, í Rangárþingi ytra, Ásahreppi og Þingeyjarsveit. Framkvæmdin felur í sér nýjan 187-197 km langan veg frá Sultartangalóni að Mýri í Bárðardal. Áætlanir eru um að meta umhverfisáhrif tveggja leiða.
Markmið framkvæmdarinnar er að bæta samgöngur um miðhálendi Íslands milli Suður- og Norðurlands. Einnig að bæta aðgengi almennings að miðhálendinu til útivistar og til að styrkja ferðaþjónustu.
 
Drög að tillögu að matsáætlun eru kynnt á vef Vegagerðarinnar http://www.vegagerdin.is/framkvaemdir/umhverfismat/matsaetlun/, samkvæmt reglugerð 1123/2005 um mat á umhverfisáhrifum.
Almenningur getur gert athugasemdir við áætlun Vegagerðarinnar og er athugasemdafrestur til 20. nóvember 2014. Athugasemdir má senda með tölvupósti til helga.adalgeirsdottir@vegagerdin.is og soley.jonasdottir@vegagerdin.
is, eða senda til Vegagerðarinnar, Miðhúsavegi 1, 600 Akureyri.
 
Opið hús
Vegagerðin og Landsnet hafa haft samstarf um leiðarval vegna Sprengisandsleiðar og Sprengisandslínu, en mat á umhverfisáhrifum fyrir Sprengisandslínu er einnig að hefjast. Vegagerðin og Landsnet hafa ákveðið að standa sameiginlega að kynningarfundi um matsáætlanir þessara verkefna.
 
Opin hús verða haldin á eftirtöldum stöðum:
- Þriðjudaginn 4. nóvember í Ljósvetningabúð í Þingeyjarsveit kl. 18:00-22:00
- Miðvikudaginn 5. nóvember hjá Steinsholti sf., Suðurlandsvegi 1-3, Hellu kl. 16:00-20:00
 
Þar verða drög að tillögu að matsáætlun kynnt með útprentuðum gögnum og með upplýsingum á skjávörpum og tölvuskjám. Fulltrúar frá Landsneti, Vegagerðinni og ráðgjöfum verða á staðnum til að ræða við gesti og svara fyrirspurnum.
 
Allir eru velkomnir
Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?