Staða húsvarðar

Laus er til umsóknar staða húsvarðar á Laugalandi í Rangárþingi ytra frá og með  1. október.

Húsvörður

  • annast húsvörslu alls húsnæðis á Laugalandi;      grunnskóla, leikskóla og íþróttamannvirkja, þ.m.t. sundlaugar. Hann sinnir      léttu viðhaldi og tryggir að allur búnaður virki sem skyldi og er ábyrgur fyrir ræstingu mannvirkja.
  • er tengiliður stofnana við alla viðburði sem haldnir eru á Laugalandi.
  • vinnur með börnum og unglingum bæði við gæslu nemenda í      skóla og við íþróttaiðkanir.

Leitað er eftir laghentum einstaklingi sem er þægilegur í samstarfi og á auðvelt með að umgangast  börn og unglinga á leik- og  grunnskólaaldri.

Launakjör eru skv. samningum Foss.

Vinnutími húsvarðar er frá kl. 08:00 – 17:00 og frá 08:00 – 16:00 yfir sumarmánuðina.

Upplýsingar veitir Sigurjón Bjarnason skólastjóri í síma 4876540/8964841 og Þórhallur Svarvarsson forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 8645747

Umsóknum skal skila rafrænt á laugholt@laugaland.is fyrir 18 september n.k.

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?