Fossabrekkur í Rangárþingi ytra
Fossabrekkur í Rangárþingi ytra

Leitað er að drífandi stjórnanda til að leiða áframhaldandi uppbyggingu í sveitarfélaginu.

Helstu verkefni:

  • Sveitarstjóri er æðsti yfirmaður starfsfólks sveitarfélagsins og skal sjá um að stjórnsýsla sveitarfélagsins samræmist lögum, samþykktum og viðeigandi fyrirmælum yfirmanna.
  • Daglegur rekstur sveitarfélagsins og ábyrgð á framkvæmd ákvarðana sveitarstjórnar.
  • Yfirumsjón með skipulagi og virkni stjórnsýslu sveitarfélagsins og starfsmannamálum.
  • Náið samstarf við sveitarstjórn, undirbúningur og upplýsingagjöf á fundum sveitarstjórnar og byggðarráðs.
  • Annast upplýsingamiðlun og samskipti við samstarfsaðila, stofnanir, samtök, fyrirtæki og íbúa.
  • Gæta hagsmuna sveitarfélagsins út á við, vinna að framfaramálum þess og vera talsmaður sveitarstjórnar.
  • Stefnumarkandi vinna og mótun framtíðarsýnar í ólíkum málaflokkum.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun og reynsla sem nýtast í starfi.
  • Reynsla af stjórnun, rekstri og bókhaldi.
  • Leiðtogahæfni, frumkvæði og hugmyndaauðgi.
  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum ásamt þjónustulund.
  • Áhuga og reynsla af eflingu atvinnulífs til að stuðla að vexti samfélagsins.
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
  • Æskilegt að hafa þekkingu á og reynslu af lögum og reglugerðum í opinberri stjórnsýslu.
  • Reynsla af störfum á sveitarstjórnarstigi er æskileg.
  • Æskilegt er að sveitarstjóri sé búsettur í sveitarfélaginu.

 

Rangárþing ytra er sveitarfélag í örum vexti, staðsett í hjarta Suðurlands og skartar mörgum af fegurstu náttúruperlum Íslands. Sveitarfélagið er landstórt með um 1.840 íbúa og hefur þeim farið fjölgandi. Stærsti þéttbýliskjarninn er Hella, þar sem um 1.000 manns búa. Dreifbýlið er blómlegt með öflugum landbúnaði, hestamennsku og vaxandi ferðaþjónustu. Mikil uppbygging hefur verið í öllu sveitarfélaginu undanfarin ár. Atvinnulífið er öflugt með fjölbreyttum möguleikum, m.a. í ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu og landbúnaði.

Sveitarfélagið rekur grunn- og leikskóla á Hellu og Laugalandi og sundlaugar á báðum stöðum, ástamt því að reka íþróttahús á Hellu, Laugalandi og í Þykkvabæ. Hafnar eru framkvæmdir við uppbyggingu nýs skólahúsnæðis á Hellu, sem felur í sér viðbyggingu við grunnskólann og byggingu nýs leikskóla og tónlistarskóla, en allir skólarnir verða samtengdir. Samhliða verður íþróttaaðstaða utandyra endurnýjuð.

Rangárþing ytra er skilgreint sem heilsueflandi samfélag og eru einkunnarorð þess ,,fyrir okkur öll“.

 

Umsóknir óskast fylltar út hér eða á vefsíðu www.hagvangur.is. 

Umsóknarfrestur er til og með 27. Júní n.k.

Umsóknum skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf.

Nánari upplýsingar veita Katrín S. Óladóttir, katrin@hagvangur.is, og Yrsa Guðrún Þorvaldsdóttir, yrsa@hagvangur.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?