Staðgengill forstöðumanns og sundlaugarvörður óskast

Íþróttamiðstöðin á Hellu auglýsir 100% starf í vaktavinnu. Um framtíðarstarf er að ræða og mun viðkomandi fá alla viðeigandi þjálfun á vinnustaðnum.

Verkefni

  • Staðgengill forstöðumanns í fjarveru hans.
  • Öryggisvarsla við sundlaug og sundlaugarsvæði.
  • Klefavarsla og baðvarsla.
  • Afgreiðsla, önnur þjónusta og þrif.

Hæfniskröfur

  • Góð samskiptahæfni.
  • Rík þjónustulund.
  • Hreint sakavottorð.
  • 20 ára eða eldri
  • Standast próf laugarvarða.

Umsóknarfrestur er til og með 23. febrúar 2026.

Aðilinn sem verður ráðinn þarf að ljúka námskeiði í skyndihjálp og standast sundpróf laugarvarða skv. reglugerð um hollustuhætti á sund- og baðstöðum.

Laun eru greidd skv. kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Frekari upplýsingar veitir Ragnar Jóhannsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja, í s: 7708281.

Sveitarfélagið áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.

Umsóknir sendist á netfangið ragnar@ry.is