Guðni G. Kristinsson veitustjóri ræsir dælur Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps í Fögrubrekku.
Guðni G. Kristinsson veitustjóri ræsir dælur Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps í Fögrubrekku.

Sá áfangi náðist nú í janúar að framkvæmdum lauk við stækkun s.k. Lækjarbotnaveitu hjá Vatnsveitu Rangárþings ytra og Ásahrepps bs. Framkvæmdir hafa staðið yfir frá 2019 en um er að ræða nýjan miðlunartank í s.k. Fögrubrekku í Landsveit sem tengir saman vatnsöflunarsvæði veitunnar í Lækjarbotnum og m.a. dreifikerfi veitunnar í Bjálmholti, Götu og við Skammbeinsstaði. Með tilkomu þessarar mikilvægu framkvæmdar þá er leyst úr vatnsþörf veitusvæðisins til langrar framtíðar og afhendingaröryggi veitunnar er tryggt. Verktaki við framkvæmdina var Þjótandi ehf og undirverktaki byggingarinnar í Fögrubrekku var Tré- og Straumur ehf en heildarkostnaður við verkið var um 230 mkr. Það eru sveitarfélögin Rangárþing ytra og Ásahreppur sem eiga veitukerfið en umsjón með rekstri og framkvæmdum er í höndum Þjónustumiðstöðvar Rangárþings ytra.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?