Starfsfólk óskast á Leikjanámskeið á Hellu

Starfsfólk óskast á Leikjanámskeið á Hellu

Rangárþing ytra óskar eftir öflugu og jákvæðu starfsfólki til starfa á Leikjanámskeiði sveitarfélagsins sumarið 2026 á Hellu.

Leitað er að ábyrgum, skapandi og hressum einstaklingum sem hafa gaman af því að vinna með börnum og taka þátt í fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá.

Helstu verkefni:

  • Umsjón og þátttaka í leikjum og útivist
  • Aðstoð við skipulag dagskrár
  • Sundferðir og hópefli
  • Almenn umsjón og stuðningur við börn á námskeiðinu

Leikjanámskeiðið er fyrir börn fædd 2016–2019 og verður lögð áhersla á gleði, öryggi og jákvæða upplifun fyrir öll börn.

Starfsstaður: Hella
Tímabil: 8. júní – 3. júlí 2026
Vinnutími samkvæmt nánara samkomulagi

Við leitum að einstaklingum:

  • 18 ára og eldri
  • Með reynslu eða áhuga á starfi með börnum
  • Sem geta unnið sjálfstætt og í teymi
  • Með jákvætt viðmót og góða samskiptahæfni

Reynsla af tómstunda-, íþrótta- eða uppeldisstarfi er kostur.

Sótt er um starf með því að senda umsókn og stutta kynningu á netfangið ry@ry.is eða í gegnum umsóknarkerfi sveitarfélagsins.

Umsóknareyðublaðið má nálgast hér.