Starfsmaður óskast í íþróttamiðstöðina Laugalandi

Rangárþing ytra auglýsir eftir starfsmanni í íþróttamiðstöðina á Laugalandi.

Laus er til umsóknar 100% staða sem umsjónarmaður íþróttamiðstöðvarinnar á Laugalandi. Um er að ræða starf sem unnið er í vaktavinnu samkvæmt vaktaplani. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með daglegum rekstri íþróttamiðstöðvar
  • Samskipti við nemendur og kennara ásamt afgreiðslu viðskiptavina
  • Sundlaugargæsla

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
  • Reynsla af þjónustustörfum er kostur
  • Reynsla af vinnu með börnum og unglingum er kostur
  • Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund
  • Geta til að sinna minniháttar viðhaldi
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
  • Hreint sakavottorð (skv. 10. grein Æskulýðslaga)
  • Viðkomandi þarf að standast hæfnipróf sundstaða
  • Lágmarksaldur er 20 ára


Ofangreindar hæfniskröfur eru ekki í áhersluröð. Auk þeirra hæfnikrafna sem tilgreindar eru er leitað að lausnamiðuðum, metnaðarfullum einstaklingi í starfið sem ber hag þjónustunotenda fyrir brjósti.

Með umsókn skal skila ferilskrá og kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjenda. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir um að senda tölvupóst á ragnar@ry.is.

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknarfrestur er til og með 20. júní 2025.

Upplýsingar um starfið gefur Ragnar Jóhannsson, forstöðumaður íþróttamannvirkja í síma 770-8281 eða í tölvupósti á netfangið ragnar@ry.is