Störf í félagslegri liðveislu

Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu auglýsir eftir starfsmanni í hlutastarf fyrir tímabilið maí - ágúst til að veita ungmenni með fötlun félagslega liðveislu. Um er að ræða persónulegan stuðning og aðstoð til að taka þátt í menningar- og félagslífi. Um er að ræða fjölbreytt, lærdómsríkt og skemmtilegt starf.

Karlar og konur 18 ára eða eldri eru hvött til að sækja um starfiðFélagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellsýslu leitar að einstaklingi/um á aldrinum 18-25 ára til þess að sinna félagslegri liðveislu fyrir börn og fullorðna.

 

Frekari upplýsingar veitir Inga Jara Jónsdóttir, ráðgjafi í síma 487-8125 eða á inga@felagsmal.is

----

Félagsleg liðveisla er persónulegur stuðningur og aðstoð meðal annars til að aðstoða einstakling við að taka þátt í menningar- og félagslífi, sækja menningar- og íþróttaviðburði, fara í sund, spjalla saman, taka þátt í félagsstarfi – allt eftir áhugasviði hvers og eins.

Um er að ræða tímavinnu og er vinnutími samkomulagsatriði. Starfið er tilvalið með námi eða sem aukavinna. Starfið hentar bæði körlum og konum 18 ára eða eldri.

Nánari upplýsingar veitir Inga Jara Jónsdóttir í síma 487 8125 eða á netfangið  inga@felagsmal.is.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?