Stuðningsfulltrúi óskast í Grunnskólann á Hellu

Grunnskólinn á Hellu auglýsir starf stuðningsfulltrúa.

Okkur vantar áhugasaman og duglegan einstakling í starfsmannahóp Grunnskólans á Hellu. Um er að ræða gæslu í frímínútum, aðstoð í bekk á yngsta stigi og á skóladagheimili. Lögð er áhersla á góð mannleg samskipti gagnvart börnum og fullorðnum. 

Um 100% stöðu er að ræða.

Umsóknarfrestur er til og með 20. desember nk.

Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við undirrituð til að fá frekari upplýsingar í síma 4887020 eða með því að senda tölvupóst á eftirfarandi netföng:

Kristinn Ingi A. Guðnason skólastjóri - netfang: kristinn@grhella.is, s: 8481467

Særún Sæmundsdóttir deildarstjóri - netfang: saerun@grhella.is