02. júlí 2025
Fréttir

Auglýst er eftir áhugasömum og duglegum einstaklingi til þess að taka að sér störf á skóladagheimili frá og með 15. ágúst nk.
Um 40-50% stöðu er að ræða a.m.k. fram að áramótum.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi reynslu af því að vinna með börnum.
Umsóknarfrestur er til og með 31. júlí nk.
Hæfnikröfur:
- Reynsla af vinnu með börnum æskileg
- Lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Hreint sakavottorð skilyrði
Grunnskólinn Hellu byggir á uppeldisstefnunni „Jákvæður agi“. Sú stefna gengur út á að móta umhverfi í skólum sem einkennist af umhyggju og byggist á gagnkvæmri virðingu, reisn, vinsemd og festu.
Grunnskólinn Hellu er Grænfánaskóli.
Í Grunnskólanum Hellu verða u.þ.b. 190 nemendur í 1.-10. bekk.
Áhugasamir vinsamlegast hafið samband við undirritaða til að fá frekari upplýsingar:
Kristín Sigfúsdóttir skólastjóri, netfang: kristins@grhella.is
Kristinn Ingi A. Guðnason aðstoðarskólastjóri, netfang: kristinn@grhella.is
Lovísa Björk Sigurðardóttir, forstöðukona skóladagheimilis, netfang: lovisa@grhella.is