Stuðningsfulltrúi óskast í Laugalandsskóla

Laugalandsskóli í Holtum auglýsir starf stuðningsfulltrúa

Helstu verkefni og ábyrgð:

Starfið felst í að aðstoða nemendur í daglegu skólastarfi og frístund, styðja við félagslega og námslega færni og vinna náið með kennurum og öðru starfsfólki. Sinna gæslu á fótboltavelli og útisvæði.

Menntunar- og hæfnikröfur

  • Góð almenn menntun – stuðningsfulltrúanám eða uppeldismenntun er kostur
  • Reynsla eða menntun sem snýr að börnum með flóknar þjónustuþarfir er kostur
  • Áhugi á að starfa með börnum og ungmennum
  • Jákvæðni og vilji til að ná árangri í starfi
  • Mjög góð samskiptahæfni og sveigjanleiki
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Góð íslenskukunnátta
  • Hreint sakavottorð

 

Ráðið er í starfið frá 1. ágúst 2026. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga. Umsóknum skal fylgja ferilskrá ásamt kynningarbréfi með rökstuðningi um hæfni viðkomandi í starfið, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað.

Umsóknarfrestur er til 22. maí.

Nánari upplýsingar veitir Jónas Bergmann Magnússon skólastjóri í netfangið jonas@laugaland.is

og Ragna Magnúsdóttir aðstoðarskólastjóri í netfangið ragna@laugaland.is.