Stuðningskennari óskast til starfa við leikskólann Heklukot

Auglýst er eftir stuðingskennara til starfa við leikskólann Heklukot á Hellu.

Allar umsóknir skoðaðar.

Áherslur stuðningskennara og starsfólks eru að:

  • sinna sérstaklega umönnun og kennslu barns sem þarfnast stuðnings í samráði við deildarstjóra og sérkennslustjóra.
  • vinna eftir einstaklingsnámskrá og settum markmiðum sem þarf að þjálfa með barninu.
  • taka þátt í að meta framfarir.
  • taka þátt á teymisfundum er varða barnið.
  • starfa samkvæmt dagskipulagi leikskóla sem felur í sér matar- og hvíldartíma, útiveru, ýmsa leiki og skapandi verkefni fyrir börnin undir leiðsögn leikskólakennara eða annarra starfsmanna.
  • Starfið er frá mánudegi til fimmtudags í 52,9 % og vinnutíminn 8:00-13:00.

Menntun, hæfni og reynsla:
Leikskólasérkennaramenntun, þroskaþjálfamenntun, Bs. í sálfræði eða önnur sambærileg menntun sem nýtist í starfi.
Framhaldsmenntun í sérkennslufræðum æskileg.
Reynsla af sérkennslu.

Góð íslenskukunnátta.
Reynsla af starfi í leikskóla.
Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð.
Frumkvæði, áhugi og metnaður í starfi.
Góð tölvukunnátta.

Umsókn og ferilskrá óskast send rafrænt á heklukot@heklukot.is. Nánari upplýsingar veitir Inga Stefánsdóttir leikskólastjóri í síma 4887049, netfang: inga@heklukot.is

Umsóknarfrestur til 28. ágúst 2026.