Ertu að skipuleggja viðburð eða verkefni sem tengist barnamenningu eða ertu með góða hugmynd á því sviði?
Verkefnastyrkur Barnamenningarsjóðs tyrkir fjölbreytta starfsemi á sviði barnamenningar með áherslu á sköpun, listir og virka þátttöku barna. Allir sem koma að barnamenningu geta sótt um.
Fresturinn til að sækja um í þennan sjóð rennur út 20. mars svo nú er um að gera að hafa hraðar hendur og skila inn.
List fyrir alla - barnamenning um allt land auglýsir eftir umsóknum um listviðburði eða verkefni á sviði barnamenningar fyrir grunnskólabörn. Starfandi listamenn, stofnanir og aðrir þeir er sinna barnamenningu á einhvern hátt geta sent inn umsókn.
Umsóknarfresturinn í þennan sjóð er til 22. mars.
Smellið á tenglana í fréttinni til að nálgast frekari upplýsingar um sjóðina.