Suðurlandsdeild hestaíþrótta fagnar sínu 10. starfsári í ár og það stefnir í spennandi keppni.
Deildin er samvinna Hestamannafélagsins Geysis og Rangárhallarinnar og fyrirkomulagið er þannig að atvinnu- og áhugamenn mynda saman keppnislið. Ellefu lið eru staðfest í ár en þau munu etja kappi í fjórum greinum og mun stigahæsta liðið standa uppi sem sigurvegari.
Fyrsta keppnin er á morgun, 24. febrúar og dagskráin er eftirfarandi:
• 24. febrúar: Slaktaumatölt og Parafimi
• 10. mars: Fjórgangur
• 24. mars: Fimmgangur
• 7. apríl: Tölt og skeið (gegnum höllina)
Eiðfaxi sýnir beint frá keppninni en stjórn Suðurlandsdeildarinnar hvetur alla áhugasama til að fjölmenna í Rangárhöllina
Nánar má lesa um málið á Eiðfaxi.is og á Facebook-síðu Suðurlandsdeildarinnar má finna upplýsingar um deildina og liðin.