Sumardagskrá barna 2024

Sumarið er á næsta leiti og sumardagskrá barna í Rangárþingi ytra verður fjölbreytt og skemmtileg.

20. maí næstkomandi verður kynningardagur sumarnámskeiða í íþróttahúsinu á Hellu og BMX brós ætla einnig að mæta í brettagarðinn með sýningu og námskeið.

Gleðin hefst kl. 11 og hvetjum við íbúa til að koma og kynna sér úrvalið og skemmta sér með hjólameisturunum í BMX brós.

Öll sem vilja geta mætt með hjól og tekið þátt í námskeiðinu eftir sýninguna.

Opið er fyrir skráningar á sumarnámskeiðin og við minnum á frístundastyrkinn sem hægt er að nýta upp í öll námskeið.

 

Ábendingar varðandi bækling má senda á osp@ry.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?