Sumarhúsafólk - Reglur um sóttkví gilda líka í sveitinni

Að gefnu tilefni vekja lögreglustjórinn á Suðurlandi og almannavarnanefndir á Suðurlandi athygli á því að reglur um sóttkví gilda líka um þá sem kjósa að dvelja í sumarhúsi á meðan sóttkví stendur.

  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara út fyrir sumarhúsið nema brýna nauðsyn beri til.
  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir eftir aðföngum, þ.á.m. í matvöruverslun.
  • Einstaklingar í sóttkví mega ekki fara sjálfir með sorp á móttökustöðvar sveitarfélaga.
  • Einstaklingar í sóttkví mega fara í göngutúra eða bíltúra, en gæta þarf að því að halda reglur um fjarlægð frá öðrum.


Njótum þess að vera í sveitinni en fylgjum reglum og vinnum saman að því að koma í veg fyrir smit. Athygli er vakin á því að brot á reglum um sóttkví varða við lög.

Lögreglustjórinn á Suðurlandi, Kjartan Þorkelsson

Formenn almannavarnanefnda á Suðurlandi:
Ágúst Sigurðsson, Ásta Stefánsdóttir og Matthildur Ásmundardóttir

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?