04. ágúst 2026
Tilkynning frá embætti byggingarfulltrúa.
Vegna sumarleyfis byggingarfulltrúa verða ekki haldnir afgreiðslufundir byggingarfulltrúa á tímabilinu 20. ágúst til 9. september 2026.
Síðasti afgreiðslufundur fyrir leyfi verður haldinn þriðjudaginn 18. ágúst 2026.
Þeir sem óska eftir að mál verði tekin fyrir á síðasta afgreiðslufundi fyrir sumarleyfi þurfa að skila fullnægjandi gögnum eigi síðar en þriðjudaginn 11. ágúst 2026, þ.e. viku fyrir fundinn.
Embætti byggingarfulltrúa tekur aftur til starfa samkvæmt venjubundnu fyrirkomulagi 10. september 2026.
Byggingarfulltrúi Rangárþings ytra