Sumarnámskeið barna í Rangárþingi ytra 2024

 

Ætlar þú að halda námskeið fyrir börn í sumar eða hefurðu áhuga á slíku?

Rangárþing ytra hvetur öll sem hyggjast halda sumarnámskeið fyrir börn í ár að láta okkur vita svo við getum kynnt það í rafræna sumarbæklingnum okkar sem kemur út í vor og á netmiðlunum okkar.

Einnig hvetjum við öll sem langar að halda námskeið en eru ekki með fullmótað skipulag eða vilja ræða málin við okkur og viðra hugmyndirnar að hafa samband.

Tilkynningar og fyrirspurnir sendist á osp@ry.is og ragnar@ry.is

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?