Sundlaugin á Hellu
Sundlaugin á Hellu

Sundlaugarnar loka kl. 13:00 í dag og verða þær lokaðar þar til ástand hitaveitumála lagast.

Ástæðan er sú að á meðan framkvæmd Veitna hefur staðið hefur hitastig vatns verið lægra en vanalega hjá hluta af viðskiptavinum Rangárveitna. Þar sem vinnan við borunina hefur nú dregist fram á haustið höfum við látið vinna sérstaka veðurspá fyrir svæðið. Í henni er gert ráð fyrir nokkuð kólnandi veðri á næstunni. Gangi spáin eftir er fyrirsjáanlegt að notkun heits vatns mun aukast umfram það sem veitan ræður við í núverandi stöðu. 

Af þessum sökum er ljóst að draga verður úr notkun heita vatnsins um tíma. Sundlaugunum á Laugalandi, Hellu og Hvolsvelli verður því lokað klukkan 13:00 á morgun, miðvikudag og verða þær lokaðar þar til ástandið lagast.

Ekki er víst að lokun sundlauganna spari nægjanlegt heitt vatn til að hægt sé að halda uppi fullri þjónustu hitaveitu við heimili og fyrirtæki á svæði Rangárveitna. Við biðjum íbúa og fyrirtæki að leggja sitt að mörkum við að spara heita vatnið eins og mögulegt er. Það er best gert með því að stilla húshita hóflega og sleppa því að láta vatn renna í heita potta.  Í kuldatíð er ráðlegt að hafa glugga lokaða og útidyr ekki opnar lengur en þörf krefur til að koma í veg fyrir að það kólni innandyra.

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?