Sundlaugin Laugalandi opnar eftir endurbætur

Viðgerðir og endurbætur í sundlauginni á Laugalandi eru nú á lokametrunum og verður opnað fyrir gesti á ný föstudaginn 3. júlí klukkan 14:00.

Unnið hefur verið að viðgerðum og endurbótum síðustu vikur og er nú allt að verða tilbúið til opnunar. Almenn starfsemi verður komin í gang á ný, en enn á eftir að setja vatn á rennibraut og vaðlaug þar sem verið er að leggja nýjan dúk í vaðlaugina. Gert er ráð fyrir að þau kerfi verði tekin í notkun um leið og þeirri vinnu er lokið.

Opnunartímar í sundlauginni á Laugalandi í sumar verða eftirfarandi:

Föstudagar: 14:00–21:00
Laugardagar: 10:00–19:00
Sunnudagar: 10:00–15:00

Við hlökkum til að taka á móti gestum í sundlaugina á Laugalandi á ný.