Sveitarstjórn lauk í dag fyrri umræðu um fjárhagsáætlun Rangárþings ytra fyrir árin 2027–2030.
Tillagan gerir ráð fyrir áframhaldandi traustum rekstri sveitarfélagsins á næstu árum. Samkvæmt útkomuspá fyrir árið 2026 er gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 334,5 milljónir króna í samanteknum A- og B-hluta. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 er áætlað að rekstrarniðurstaðan verði jákvæð um 389,8 milljónir króna.
Lykiltölur
Heildartekjur sveitarfélagsins í samanteknum A- og B-hluta eru samkvæmt útkomuspá áætlaðar 4.610 milljónir króna árið 2026. Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2027 er gert ráð fyrir að þær verði 4.758 milljónir króna. Þar af er gert ráð fyrir að framlög úr jöfnunarsjóði nemi 1.254,8 milljónum króna á árinu 2027.
Áætlað er að laun og launatengd gjöld í samstæðunni nemi 2.236 milljónum króna árið 2027 og annar rekstrarkostnaður 1.642,7 milljónum króna.
Fjárfestingar á döfinni
Heildarfjárfesting í samanteknum A- og B-hluta er samkvæmt útkomuspá áætluð 1.149,9 milljónir króna árið 2026. Helstu framkvæmdir á árinu hafa verið áframhaldandi uppbygging grunn- og leikskóla á Hellu, framkvæmdir við grunn- og leikskóla á Laugalandi, uppbygging á íþróttasvæði á Hellu og framkvæmdir við gatnakerfi Hellu.
Á árinu 2027 er heildarfjárfesting í samanteknum A- og B-hluta áætluð 833 milljónir króna. Þar ber hæst fjárfesting í leikskólabyggingu á Hellu. Þá er áætlað í gatnagerð á Hellu, meðal annars við Melöldu og Gaddstaðaveg. Einnig er gert ráð fyrir áframhaldandi framkvæmdum á Laugalandi, uppbyggingu á íþróttasvæði á Hellu þar sem meðal annars verður sett upp hlaupabraut, lagfæringum á leikvöllum á Hellu, sem og fjárfestingu í fráveitu.
Seinni umræða um fjárhagsáætlun fer fram á fundi sveitarstjórnar miðvikudaginn 9. desember.