Sýnatökur á Hvolsvelli – PCR og hraðpróf

Sýnatökur hefjast í Rangárþingi 21. desember, að Hvolsvegi 31, Hvolsvelli Sjá kort. 

 

Það verður öryggisfyrirtækið Securitas  sem mun sjá um sýnatökurnar undir handleiðslu heilbrigðisstarfsmanna á HSU, eins og verið hefur undanfarið á Selfossi. 

 

Framkvæmdar verða PCR sýnartökur og hraðpróf.  Opið verður í skimanir frá kl. 15:00 – 17:00 alla virka daga.

 

Sjá nánar um sýnatökur og aðrar upplýsingar varðandi Covid á heimasíðu HSU

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?