Sundlaugin á Hellu
Sundlaugin á Hellu

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. til 28. nóvember 2021. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess.

Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn á www.syndum.is og fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og skrá sínar sundvegalengdir. Þeir sem eiga notendanafn í verkefninu Lífshlaupið eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.

Syndum saman hringinn í kringum Ísland

Þeir metrar sem þú syndir safnast saman og á forsíðu www.syndum.is verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt.

Á heimasíðu Syndum eru allar nánari upplýsingar um verkefnið auk ýmiss annars fróðleiks og upplýsingum um sundlaugar landsins. Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt möguleika á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga.

 

Frábær aðstaða í Rangárþingi ytra!

Sundlaugin á Hellu er 25 x 11 metrar og er lögleg sem keppnislaug. Við laugina eru 3 heitir pottar, 1 kaldur pottur og  2 vaðlaugar. Einnig er eimbað og sólbaðsaðstaða (sem kannski er bara fyrir þá bjartsýnustu á þessum tíma árs..)

Opnunartími - vetraropnun:
Virka daga: 06:30 - 21:00
Helgar: 10:00 - 16:00

Sundlaugin á Laugalandi er 8x16m að stærð. Við sundlaugina eru tveir heitir pottar
Opnunartími - vetraropnun:
þriðjudaga og fimmtudaga: 18:00 - 21:00
Helgar: lokað

 

 

 

 

 

Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?