
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands í samstarfi við Sundsamband Íslands stendur fyrir landsátaki í sundi frá 1. - 30. nóvember 2022. Syndum er heilsu- og hvatningarátak sem höfðar til allra landsmanna. Sund er fyrir alla óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sund er tilvalin þjálfunaraðferð þar sem sund styrkir hjarta- og æðakerfið, lungu og vöðva líkamans. Sund er frábær hreyfing bæði til þess að hlúa að heilsunni og sem skemmtileg tómstundaiðja.
Markmiðið með Syndum er að hvetja almenning til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi og nota meðal annars sund til þess. Munum eftir því hvað sund er frábært!
Til þess að taka þátt þarf að skrá sig inn með því að fara í Mínar skráningar. Einfalt er að velja sér notendanafn og lykilorð og byrja svo að skrá sínar sundvegalengdir. Þeir sem eiga notendanafn í Lífshlaupinu eða Hjólað í vinnuna geta notað það til að skrá sig inn.
Syndum saman hringinn í kringum Ísland. Þeir metrar sem þú syndir safnast saman og á forsíðunni hér verður hægt að sjá hversu marga hringi landsmenn hafa synt saman.
Hér er til hliðar er að finna ýmsan fróðleik sem og upplýsingum um allar sundlaugar landsins.
Þeir sem skrá sig og taka þátt geta átt von á að verða dregnir út og vinna veglega vinninga.
Hér má finna 10 frábærar ástæður fyrir því að þú ættir að synda eftir Guðmund Hafþórsson.
----
The National Olympic and Sports Association of Iceland, in cooperation with the Icelandic Swimming Association, is organizing a nationwide swimming campaign from November 1–30, 2022.
Let's Swim (Syndum) is a health and fitness initiative aimed at encouraging everyone in Iceland to get active. Swimming is for everyone, regardless of age, background, or physical condition.
Swimming is an excellent form of exercise that strengthens the cardiovascular system, lungs, and muscles. It is a great way to improve your health while enjoying a fun and rewarding leisure activity.
The aim of the Let's Swim campaign is to encourage people to be more physically active in their everyday lives, with swimming being one of the many ways to achieve this.
Let's remember just how great swimming is!
How to Participate
To take part, simply register by visiting My Registrations (Mínar skráningar). Choose a username and password, and you can start recording the distances you swim.
If you already have an account for Lífshlaupið (The Lifestyle Challenge) or Hjólað í vinnuna (Bike to Work), you can use the same login details.
Let's Swim Around Iceland Together!
Every metre you swim contributes to a nationwide total. On the homepage, you will be able to see how many times participants across Iceland have collectively swum the distance around the country.
You can also find useful information about swimming, along with details of all swimming pools in Iceland, in the sidebar.
Win Great Prizes!
Everyone who registers and participates will have a chance to be entered into a prize draw and win fantastic prizes!
10 Great Reasons to Swim
Read 10 Great Reasons Why You Should Swim More by Guðmundur Hafþórsson (article in Icelandic).