Hellingar, Unglingadeild Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu, stendur fyrir áheitasundi þann 30-31. október 2026. Áheitasundið fer fram í sundlauginni á Hellu og verður synt í 12 klukkustundir eða frá kl.19:00-07:00.
Unglingadeildin heldur vikulega fundi með fræðslu um starf björgunarsveita, þar sem m.a. er kennd skyndihjálp og unnið með hvetjandi hópefli.
Krakkarnir, sem eru á aldrinum 13-17 ára, eru virkilega spennt fyrir sundinu og ætla öll að gera sitt besta til að ná markmiðinu.
Markmiðið er að safna fyrir flotgöllum í unglingastærð sem nýtast til æfinga fyrir ungmennin og einnig fyrir félagsmenn við björgun í vatni. „Okkur finnst skemmtilegast að æfa í ánni björgun í vatni og langar okkur í flotgalla sem passa á okkur til þess” segja krakkarnir kampakát.
Stefnan er að synda lengd Laugarvegarins eða 55 kílómetra á 12 klukkustundum. Krakkarnir eru mjög jákvæð um að þau nái þessu markmiði og eru mjög spennt fyrir því.
„Gestum er velkomið að koma að styðja okkur og synda með okkur á opnunartíma sundlaugarinnar, á milli kl. 19:00-21:00!" Segja krakkarnir spennt.
Allar upplýsingar um sundið sem og styrktarupplýsingar eru inná Facebook síðu Flugbjörgunarsveitarinnar á Hellu. Og ef fólk vill fylgjast með sundinu verður sýnt frá því á Instagram síðu deildarinnar @unglingadeildin_hellingar